Menu

Sálmarnir 70

BIB

1 Bjargaðu mér, ó Guð! Flýttu þér Drottinn, að hjálpa mér! 3 Óvinir mínir sækjast eftir lífi mínu og njóta þess að kvelja mig. Rektu þá burt með skömm! Stöðvaðu þá! Láttu þá ekki hæða mig og spotta. 5 Allir þeir sem leita Guðs skulu fagna og gleðjast. Þeir sem elska hjálpræði þitt hrópi: „Lofaður sé Guð!" 6 En ég er í miklum vanda ó, Guð! Flýttu þér að hjálpa mér! Þú ert sá eini sem getur bjargað. Drottinn minn, láttu það ekki dragast!

Everything we make is available for free because of a generous community of supporters.

Donate